Það er 3. í sólbaði í dag og ég sit á svölunum og les. Það er svo dásamlegt að eiga suðusvalir. Sólin skín á svalirnar okkar frá 11 á morgnana og fram til sólseturs.
Þegar við vorum í Frakklandi fyrir tveimur árum lentum við í dásamlegu veðri. Þar notaði ég sítrónusafa í hárið til að gefa því ljósara yfirbragð, á náttúrulegan hátt vitaskuld. Það sama hef ég verið að gera þessa sólbaðsdaga og mér sýnist það hafa borið árangur.
Næsta skref er að fara í Operation Natural Tan. Aðalhráefni sem notað er til þess er ólívuolía og útfjólubláir geislar.
Ráð er líka að skola hárið með kamillutei eða baldursbráaseyði til að gefa því ljósan gljáa...
SvaraEyðatak for sidst, mikið var gaman í ammælinu og í saltfiskinum!
Ó, takk fyrir góð ráð fyrir Operation Natural Blonde.
SvaraEyðaTak í ligemode, það var svo gaman að hittast. Saltfiskurinn var náttúrulega ólöglegur hann var svo góður :0)
Ég tek undir með ykkur stúlkur.
SvaraEyða