Nú er ég orðinn 28 ára og eins og fram hefur komið hélt ég upp á afmælið að hætti hirðingja á úlfaldabaki í Thar eyðimörkinni (meira um það síðar).
Þessi afmælisdagur var frábrugðinn flestum öðrum sem ég hef hingað til upplifað. Honum varði ég í feiknahita og steikjandi sól, á baki Baplú (4ra ára úlfaldaótemju), endað á mat við varðeld og lagst til hvílu undir stjörnubjörtum himninum.
Þakka fyrir góðu straumana, fallegu ummælin og englaskeytin sem bárust mér alla leið til Indlands.
Þú ert sko langflottastur Balduro mio? Gaman að þú skemmtir þér vel á afmælisdaginn :-)
SvaraEyðaenginn vafi langflottastur
SvaraEyðaenglarnir sveimi ævinlega yfir þér
Til Hamingju með afmælið elsku Baldur.
SvaraEyðaBorghyltingar
Innilega til hamingju með afmælið, Baldur!
SvaraEyðaTil hamingju með afmælið
SvaraEyðakv Turninn
Elsku Ásdís og Baldur, hugsum til ykkar, innilega til hamingju með afmælið! Bestu kveðjur, Ingibjörg og Víðir
SvaraEyðaÞakka ykkur öllum kærlega fyrir þessar fallegu kveðjur.
SvaraEyðaTil hamingju með afmælið Baldur minn. Mér fannst buxurnar flottar, en þetta höfuðfat slær öllu út. Mun ég héðan í frá kalla þig Baldur Baba á meðan á för ykkar stendur. Gangi ykkur vel.
SvaraEyðaVinarkveðjur frá Tandoorímanninum.
Auðvitað er þetta rétt svar hjá þér Baldur. Mér datt bara aldrei í hug að þú sæir þetta svona skýrt og einfalt. Þú er snilli. Ég sá
SvaraEyða28 ára, þann 26, og skrifað þann 27. Menn sjá hlutina í misjöfnu ljósi. Ég sá vefjarhött en einhver annar sá buxur. El-Far.