Eins og ég hef áður greint frá á þessum vef hef ég gaman af flottum dagsetningum. Mér finnst samt alveg óþarfi að leyfa þeim að ná tökum á mér svo ég verði alveg gagntekin. Ef eitthvað er hins vegar að marka fréttir dagsins eru margir tilbúnir til að líta á þennan dag sem einhvers konar ragnarök.
Á þessum meinta degi djöfulsins ákvað ég baka bananabrauð. Ef eitthvað er til í þessum kenningum um dag djöfulsins veit ég að ég hef gert mitt til að sporna gegn myrkum öflum Satans. Bananabrauð er nefnilega bara af hinu góða.
Kæra Ásdiís
SvaraEyðaEf bananabrauð er vopn gegn illum öflum þá hvet ég þig eindregið til að halda baráttunni áfram.
Kæri Baldúur
SvaraEyðaTakk fyrir hlý orð í minn garð og minna bananabrauða.