miðvikudagur, 19. mars 2014

Ein í Osló

Ég átti erindi í höfuðstaðinn í gær. Varð að endurnýja vegabréfið mitt svo ég komist örugglega til Frakklands í apríl.

Ég tók rútuna snemma og gekk síðan frá aðalrútustöðinni eftir Karl Johans gate, löngu verslunargötunni í miðbæ Osló. Keypti sápu í Body Shop, fékk æðislega grænmetis-kókossúpu á grænmetisveitingastað sem heitir því háfleyga nafni The Fragrance of the Heart. Sama konsept og Garðurinn á Klapparstíg, þ.e. fylgjendur Sri Chinmoy bjóða upp á geggjað grænmetisfæði.

Þegar ég var búin að afgreiða vegabréfsumsóknina og fá gamla vegabréfið gatað í spað rölti ég upp að konungshöllinni og sat þar í ró og makt innan um hina túristana. Las bókina hennar Cheryl Strayed, Wild, sem ég mæli eindregið með.

Litlir, hugrakkir blómakollar höfðu stungist upp úr moldarbeðum í borginni og ég ásamt mörgum öðrum lá yfir þeim með myndavélinni. Litir! Blóm! Vor!

Á leiðinni til baka á aðalrútustöðina rölti ég aftur niður Karl Johans gate. Veðrið var dásamlegt og göngugatan var troðfull af vegfarendum, götusölum og tónlistarmönnum. Miðbærinn í Osló ómaði af harmónikku!

Ég verslaði mér smá fyrir rútuferðina heim og fékk þá að prófa sjálfsafgreiðslu í fyrsta sinn. Hafði alveg furðulega gaman af því.

Heilsaði síðan upp á túlípanana í blómabúðinni áður en ég hélt suður eftir.

Dómur: Osló kom skemmtilega á óvart. Auðvelt að rata, margt að sjá, konungshöll, góður mat og skemmtilegt veður.

Untitled
 
Untitled

Bíð eftir rútunni til Osló
 
Untitled
 
Untitled

Sporvagn!
 
Untitled
 
Untitled
 
Untitled

Hæ Ganesha
 
Untitled
 
Untitled

Í gamalli lyftu, íslenska sendiráðið á 8. hæð
 
Sigríður Dúna (kenndi mér í HÍ)

Sigríður Dúna fyrrum sendiherra í Noregi, kenndi mér í HÍ
 
Untitled
 
Untitled

Bein braut frá Karl Johans gate til konungshallarinnar
 
Untitled
 
Wild e. Cheryl Strayed + norska konungshöllin

Góð bók, Wild jafnvel
 
Untitled
 
Untitled

Halló vor!
 
Untitled
 
Untitled
 
Untitled
 
Untitled
 
Untitled
 
Untitled
 
Untitled
 
Untitled
 
Untitled
 
Untitled

Heja Ísland!
 
Untitled

Sjálfsafgreiðsla í Menu - så kjekt!
 
Untitled
 
Untitled

Halló blúmen!
 
Untitled
 
Untitled

Engin ummæli: