Hér að neðan eru vidjó frá þessum göngum þar sem fegurð Telemark og Noregs nær klárlega að koma fram.
Sýnir færslur með efnisorðinu Video. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Video. Sýna allar færslur
fimmtudagur, 24. júlí 2014
Baldur í fjallgöngum
Baldur er búinn að vera iðinn í fjallasportinu það sem af er mánuði. Hann er búinn að kíkja upp á eina þrjá kolla hér í Telemark: Vealøs, Blåfjellet og Store Nipe. Sem betur fer fyrir mig hefur hann dregið félaga sinn Kjell-Remi í þessar göngur svo ég fái frið til að lesa!
Hér að neðan eru vidjó frá þessum göngum þar sem fegurð Telemark og Noregs nær klárlega að koma fram.
Hér að neðan eru vidjó frá þessum göngum þar sem fegurð Telemark og Noregs nær klárlega að koma fram.
sunnudagur, 13. júlí 2014
Fyrsta vloggið!
Við eru svo mótiveruð þessa dagana til að breyta yfir í vegan lífsstíl. Okkur datt því í hug að filma einn dag í lífi okkar - vlogga - og deila því hér.
sunnudagur, 29. júní 2014
Strawberry fields forever
Gerd nágrannakona okkar og fyrrum leigusali bauð okkur með í jarðarberjatínslu í gær. Við slógumst með í för og sjáum ekki eftir því.
Gerd keyrði okkur að jarðarberjaakri sem er staðsettur einhversstaðar utan við Ulefoss, svona 45 mín. frá Skien. Fjölskyldan sem á akurinn notar ekkert eitur á plönturnar og manni er velkomið að koma með fötur og tína eins og mann lystir. Síðan viktar maður og borgar 35 krónur á kílóið. Eeeen! Maður fær líka að tína eins mikið upp í sig og maður vill meðan maður tínir. Win-win!
Þetta var stór akur með þúsundum plantna og hver planta svignaði af berjum. Núna er jarðarberjatíðin að líða undir lok og þá eru þau líka hvað sætust og rauðust. Ég er að segja ykkur það, þetta eru bestu ber sem ég hef fengið! Sólvermuð, safarík og sæt.
Ég setti saman smá myndband af deginu sem má sjá hér að ofan, og síðan eru nokkrar myndir sem fá að fljóta með.

mánudagur, 23. september 2013
Helgarpistillinn
Þessa helgina lágum við yfir síðustu þáttunum af True Blood. Við byrjuðum að horfa fyrr í mánuðinum og áttum þá eftir hálfa fimmtu seríu og alla sjöttu seríu. Það er skemmst frá því að segja að við hökkuðum þættina í okkur - eða kannski væri meira viðeigandi að segja að við drukkum þá í okkur? Við kláruðum altént síðustu þættina um helgina og sátum eftir í sófanum, starandi stjörfu augnaráði út í bláinn. Þvílík þeysireið sem þessir þættir eru!
Frá True Blood að öðrum málefnum. Ég er búin að skrá mig í tvö námskeið hjá coursera. Coursera gerir manni kleift að sækja námskeið sem hinar ýmsu virtu háskólastofnanir útí heimi bjóða upp á. Þetta nýja fyrirbæri kallast MOOC, sem er skammstöfun á mass open online courses, og gengur út á að ótakmarkaður fjöldi kemst að til að hlusta á fyrirlestrana og læra saman með því að spjalla á spjallþráðum.
Námskeiðin sem ég skráði mig í eru Plagues, Witches and Wars: The Worlds of Historical Fiction sem kenndur er við University of Virginia og A History of the Worlds since 1300 sem kenndur er við Princeton. Sá síðarnefndi hófst fyrir viku síðan, og ég er komin á kaf í að lesa um Svarta dauða. Sá fyrrnefndi hefur síðan göngu sína eftir þrjár vikur, og ég er sérstaklega spennt að fylgja honum eftir því flottir rithöfundar mæta á svæðið til að fjalla um verk sín og svara fyrirspurnum. Geraldine Brooks er þeirra á meðal. People of the Book, anyone? Geggjað!
En að stóru spurningunni... hvað er með þetta myndband hér að ofan?
Í síðustu viku röltum við upp að Åletjern einu sinni sem oftar, og þá fór Baldur á hnén... og gerði pýramída armbeygjur. Ég fékk sem betur fer að vera í friði og taka upp atganginn.
Síðast en ekki síst: Ég er núna farin að vinna í afgreiðslunni í Elixia. Hjálpi mér allar vættir! Ég kem ekki nándar nærri öllum setningunum frá mér á skammlausri norsku, langt í frá reyndar, né skil ég allt sem við mig er sagt (hvað er með allar þessar mállýskur?), ég er enn ekki farin að geta svarað í símann (nema til að segja: jeg er under opplæring, her kommer en som kan hjelp deg), en ég er svakalega stolt af mér fyrir að dýfa mér í kalda laugina og er fullkomlega sátt við ófullkomna norsku. Í bili.
En ég kan að segja Så bra! lýtalaust. Það kemur manni langt í Noregi.
sunnudagur, 14. júlí 2013
Aloo ka parantha
Á þessu tiltekna matreiðslunámskeiði lærðum við að útbúa malai kofta (vá, hvað sá réttu er himneskur!), mynturaitu og aloo ka parantha. Aloo ka parantha, eða bara parantha eins og þessi fylltu flatbrauð kallast í norður Indlandi, er einfaldlega chapatti brauð (hið daglega brauð Indverja) fyllt með soðnum kartöflum (aloo), rauðlauk (pyaaz) og góðum kryddum (masala), sem síðan er steikt á pönnu. Þetta er algengur morgunmatur, sem ég veit að okkur þykir sérkennilegt - kryddaður matur í morgunmat?! - en þessi flatbrauð eru alveg mergjaðslega góð! Líka á morgnana!
Og af því ég er hvort í senn áhugasöm um matreiðslu og ljósmyndun og svo sæt í mér þá set ég þessa uppskrift út fyrir þau ykkar sem langar að prófa að fá Indland beint á bragðlaukana. Ef maður kemst ekki til Indlands þá getur maður allavega fengið Indland heim til sín.
Hér að neðan er síðan myndband sem ég klippti saman frá matreiðslunámskeiðinu. Þar má sjá ferlið við að útbúa deigið og hvernig það er fyllt með kartöflustöppunni. Ég get erfiðlega lýst með orðum hvernig maður ber sig best að og því mæli ég eindregið með að kíkja á myndbandið til að sjá hvernig maður fer að því að hnoða í deigið og rúlla því út. Handbragð, handbragð, handbragð!
Ok, búum til aloo ka parantha!
HVAÐ
200 g hveiti
Smá vatn
3 kartöflur, soðnar og skrældar
1/4 - 1/2 úr rauðlauk, saxaður smátt (magn eftir smekk)
1/2 tsk cumin fræ
1/2 tsk garam masala
örlítið af chili
1 tsk fenugreek lauf (ég sleppti þessu því ég átti þetta ekki til)
1/2 tsk salt
1/2 tsk carom seed (ég sleppti þessu því ég átti þetta ekki til)
HVERNIG
Stappið kartöflurnar vel saman og blandið smátt skornum lauknum saman við. Bætið kryddi og salti saman við og hrærið vel. Leggið til hliðar.
Setjið hveitið í þægilega skál, hellið smá vatni saman við. Byrjið að hræra hveiti og vatni saman með höndunum. Bætið vatni við í smáum skömmtum (sjá myndbandið). Þegar hveitið og vatnið hafa gengið vel saman má byrja að hnoða deigið. Hnoðið þar til deigið hefur fengið góða þéttni. Fínn mælikvarði er að þrýsta þumlinum í deigið og ef hann skilur eftir sig dæld sem óðara byrjar að fyllast aftur upp í, hefur deigið náð góðum teygjanleika.
Næst á dagskrá er að rúlla deiginu út í ílanga rúllu og skipta henni í fjóra parta. Rúllið hverjum parti í góða kúlu. Dýfið kúlunni í hveiti og byrjið að fletja hana út milli fingranna (sjá handtök í myndbandi). Skiptið fyllingunni í fjóra parta. Fyllið því næst útflatt deigið með einum fjórðungi af katöflufyllingunni, ljúkið deiginu yfir fyllinguna og passið að þrýsta köntunum vel saman. Hér getur verið gott að væta fingurgómana í vatni til að hjálpa deiginu að límast betur saman. Ef það reynist erfitt að loka kúlunni aftur er of mikil fylling í, og þá má fjarlægja svolítið af henni til að auðvelda sér verkið.
Ok, næst er að dýfa flottu, fylltu kúlunni í deig og því næst leggja á borð, taka sér kefli í hönd og byrja að fletja út bolluna þangað til hún tekur á sig mynd flats brauðs. Ef laukurinn er of gróft skorinn rífur hann gat á yfirborð flatbrauðsins, en það gerir ekki mikinn skaða.
Steikið á létt olíuborinni pönnu við háan hita. Gott að dýfa pensli í olíu og létt bursta flatbrauðið að ofan á meðan það steikist á annarri hliðinni. Paranthan er tilbúin þegar brauðið er farið að dökkna verulega.
Þessi flatbrauð er mjög gott að borða ein og sér, finnst mér, en Indverjar borða þau oftast með jógúrt raitu, pikkluðum chili/mangó/tómat og chutney, og auðvitað brennheitu chai. Einnig góðar með smjöri!
Þessi parantha flatbrauð er einnig hægt að búa til með spínati (palak) og blómkáli (gobi).
þriðjudagur, 12. mars 2013
Baldur í tökum
Baldur var við tökur í Nauthólsvíkinni í gær. Hljómar smart, ekki satt?
Hann var með úrvalslið á bak við sig: verðlaunaleikstjóra, verðlaunakvikmyndatökumann og verðlaunakvikmyndagerðarmann. Reyndar var þetta allt einn og sami maðurinn.
Svona var þetta (ég veit því ég sá): Baldur mætti á svæðið og djöflaðist einhver heil ósköp í grindum og tækjum og á grassverðinum, á meðan leikstjórinn og kvikmyndatökumaðurinn og kvikmyndagerðarmaðurinn varð að hafa sig allan við til að festa ósköpin á mynd. Upphífur og apaklifur, armbeygjur og lever plankar, hent inn smá hugleiðslu og urdhva dhanurasana.
Þegar tökum var lokið og við skötuhjú á leið heim stoppuðum við á Klambratúni til að leika okkur aðeins í rólunni. Sem var gaman en ekki mjög skynsamlegt því mér var mjög mál, og svo fékk ég hláturskast...
Hér eru nokkrar myndir frá deginum og neðst er smá stop motion myndband sem ég klippt af okkur apaköttum í aparólu. Njótið!

sunnudagur, 10. mars 2013
Í hljóðfæraversluninni
Við kíktum í gær á Garðinn og gerðum okkur glaðan dag þar með tilheyrandi sneið af gulrótaköku.
Eftir notalegheitin á Garðinum ákváðum við að kíkja til nágrannanna neðar í götunni, sem er hljóðfæraverslunin Sangitamiya. Hún er rekin af Kólumbíumanni sem talar svo lýtalausa íslensku að oftast er ég ekki viss hvort hann sé Íslendingur eða ekki. En núna veit ég það, hann er frá Kólumbíu.
Við prófuðum nokkur áslátturshljóðfæri og Baldur fór að skoða gítarana og er núna að segja mér í óspurðum að bráðum eigi hann afmæli. Hmm, hvað skyldi hann meina með þessu?
Hér eru nokkrar myndir úr þessari skemmtilegu búð og lítið myndband sem sýni svo ekki verður um villst að við erum sannarlega Mozertbörn. Bimmbammbúmm!

föstudagur, 18. maí 2012
Baldur och Alexander badar
Nýtt stop-motion myndband til að fagna því að Baldur og Alexander stungu sér í hafið um daginn og urðu kaldir í gegn. Enda kaldir karlar á ferðinni!
Nú fer að koma að mér að stinga tánni í saltan sjó, úff úff.
mánudagur, 7. maí 2012
En tur i den norske vinter
Hér er nýjasta stop-motion myndbandið mitt. Við Baldur fórum í göngutúr um eyjuna litlu á öðrum degi páska þegar snjórinn hafði náð að þekja jörð að nýju. Ég reyndi eftir fremsta megni að festa upplifunina á filmu í því augnamiði að koma eyjunni, vetrinum, hafinu og lífinu hér til skila út í heim. Hér er afraksturinn, vær så god!
fimmtudagur, 26. apríl 2012
Afmælisbarn dagsins: Baldur
Baldur á afmæli í dag! 33ja ára og aldrei verið betri, ég lýg því ekki. Hann er eins og gott vín eða hrísgrjón, já eða gott lag eða kvikmynd, eldist einkar vel.
Það verður engin veisla eða slíkt í tilefni dagsins en við ætlum nú að gera okkur dagamun og erum í því skyni búin að kaupa gourmet torskefilet í litlu búðinni. Við ætlum að hafa ofnbakaðan fiskrétt með rjómaosti og brokkolí í kvöldmat og í eftirrétt verður salthnetu/karamelluís sem afmælisbarnið valdi. Sambýlingarnir verða heiðursgestir. Semsé einfalt og þægilegt.
Ég setti saman lítið myndband í tilefni dagsins, tileinkað Baldri mínum. Til hamingju með daginn elskan mín!
---------------
Viðbætur 27.04.12: Fiskrétturinn var æði, hrísgrjónin voru karrýgul eins og afmælisbarnið vill hafa þau og svo komu sambýlingarnir á óvart með blöðrufoss niður stigann og gáfu afmælisbarninu spúna og sökkur svo hann geti nú farið að veiða sej (ufsa) út á bryggju. Afmælisbarnið vonast líka til að ná í lúðu og hefur fengið ábendingar um góð veiðilönd fyrir slíkan fisk. Afmælisbarnið vonast líka eftir iPhone frá betri helmingnum í afmælisgjöf, verður maður ekki að sjá til þess að það rætist?

mánudagur, 9. apríl 2012
One More Cup Of Coffee
Hér er fyrsta stop-motion myndbandið mitt. Umfjöllunarefnið er kaffi og kraftlyftingar, hvorki meira né minna, og auðvitað er Baldur hinn fínasti aðalleikari/leikmunur.
Stop-motion er tjáningarform/listform/miðlun sem gengur út á að mynda viðfangsefni og raða ljósmyndunum síðan upp svo það líti út sem um hreyfða mynd sé að ræða. Ég notaðist við litla 20 cm Cyber-shot þrífótinn minn í einhverjum atriðum og síðan hélt ég á myndavélinni í öðrum. Fyrir vikið verða heildaáhrifin svolítið rústik, þ.e. hreyfðari myndir en ella sem kalla á grófari skiptingar milli mynda í stað flauelsmjúks rennslis. Þannig á það að vera, allavega hjá mér haha!
Eitt áramótaheit í höfn, jei!
sunnudagur, 22. janúar 2012
Myndband: 2011 í myndum og tónum
Síðustu helgi sat ég við lengi lengi og vann að því að púsla saman myndum og myndbandsbútum frá 2011. Árið var svo viðburðaríkt að mér fannst ég verða að sýna því tilhlýðilega virðingu og hér er afraksturinn.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)