Sýnir færslur með efnisorðinu Skipulagning. Sýna allar færslur

miðvikudagur, 19. febrúar 2014
miðvikudagur, 12. febrúar 2014
Wall of Inspiration
Í byrjun vikunnar fylltist ég innblæstri og kláraði að setja saman þennan innblástursvegg. Viðeigandi að gera það á degi sem maður er innblásinn!
Þar sem við sóttum jógakennaranámið í Goa í Indlandi (Brahmani Yoga) var að finna stóra töflu sem stóð rétt fyrir utan anddyri aðaljógasalarins. Þar hafði stofnandinn, Julie Martin, sett upp myndir og tilvitnanir sem henni þóttu innblásandi, okkur hinum til uppörvunar. Það voru margar stundirnar þar sem ég var alveg útkeyrð eftir hitann, æfingarnar og áskoranir dagsins svo oft rataði ég að þessari töflu. Stóð þá og horfði og leitaði mér uppörvunar.
Ofan við þessa töflu stóð Wall of Inspiration, eða Veggur innblásturs. Ég hef sjálf verið að safna saman tilvitnunum sem mér finnast hvetjandi og minna mig á hvað mig skiptir máli og hvert ég vil stefna. Ég ákvað að útbúa minn eiginn Wall of Inspiration.
Ég prentaði út af Pinterest myndir og tilvitnanir sem töluðu til mín, auk þess sem ég útbjó nokkrar tilvitnanir sjálf. Prentaði þær síðan út, klippti og límdi á blöð. Hengdi upp, tók skref til baka og virti fyrir mér dagsverkið.
Innblástur og uppörvun. Á veggnum mínum. Eins og að hafa áttavita í höndunum og klappstýru mér við hlið.
miðvikudagur, 29. janúar 2014
Birgðatalning 2014
Síðustu helgi réðumst við í birgðatalningu. Rétt eins og verslanir fara yfir birgðastöðu sína um áramót fannst okkur rétt að okkar heimili fengi líka slíka yfirhalningu. Þá var upphaf þorrans okkur líka mikil innspýting því hvað gera bændur á þorranum? Borða matinn sem er við það að renna út!
Mig langar aðeins að segja ykkur frá því hvernig við gerðum þetta ef einhver annar skyldi vilja gera slíkt hið sama. Við tókum fyrir búrskápa og frysti. Tókum eina skúffu/hillu fyrir í einu. Tæmdum hana, þrifum og endurröðuðum (sjá mynd #1). Áður en matvælin fóru aftur á sinn stað skrifuðum við hjá okkur magn og síðasta neysludag, t.d. 2,5 kg hvítar baunir (24.12.15). Svona héldum við áfram þangað til allir búrskápar höfðu verið tæmdir og fylltir aftur, og öll matvæli skráð (sjá mynd #2).
(Fyrir matvælin okkar var þetta svolítið Biblíukennt, í ætt við "skrásetja skyldi alla heimsbyggðina". Engin var þó Ágústus keisari.)
Þegar við höfðum skráð niður allt sem hægt var að skrá fór ég yfir á næsta skref sem var að renna skærbleikum yfirstrikunarpenna yfir matvæli sem ýmist voru þegar útrunnin eða með síðasta neysludag einhvern tímann á fyrri part þessa árs (01.01.14-30.06.14). Útrunnar vörur fengu tvö til fjögur upphrópunarmerki skeytt aftan við sig, allt eftir alvarleika málsins (!!!). Síðan tók ég annan lit (skærgrænan) og strikaði yfir matvæli sem höfðu síðasta neysludag á síðari helming þessa árs (01.07.14.-31.12.14) (sjá mynd #3).
Eftir þessum yfirstrikunum vann ég síðan heildarlista sem hafði að geyma yfirlit yfir þau matvæli sem eru næst því að renna út og sem liggur mest á að koma í matreiðslu (sjá mynd #4). Skipti listanum í tvennt, fyrri part og seinni part árs, klippti út og límdi á ísskápinn (sjá mynd #6). Héðan í frá getum við síðan skipulagt máltíðir og eldað eftir þessum listum til að tryggja að maturinn okkar renni ekki út.
Lokastigið var einmitt það: að rita niður hugmyndir að máltíðum sem hægt er að elda úr matvælunum á fyrri listanum (sjá mynd #5). Þannig lítur út fyrir að við nærumst á bygggrauti, hummus, chia grauti, kínóasalati og adukibaunabuffum á næstu mánuðum. Við þreyjum í það minnsta þorrann.
Hér eru framkvæmdastigin í einföldum skrefum:
Efst á listanum hjá okkur eru adukibaunir og kínóa. Best að fara að finna & pinna uppskriftir!

- Telja birgðir: Skrá niður magn matvæla og síðasta neysludag.
- Merkja við: Merkja sérstaklega við þau matvæli sem renna út 2014, gott að nota tvo liti fyrir fyrri og seinni helming ársins.
- Skrifa lista: Skrifa upp lista af matvælum sem renna út fyrri part árs (listi 1) og annan fyrir þau sem renna út seinni part árs (listi 2).
- Brainstorma máltíðir: Hugsa upp allt sem hægt er að elda úr þeim matvælum sem eru á fyrri lista (þeim sem eru næst því að renna út). Lista hugmyndir á blað (listi 3).
- Hengja upp: Setja alla þrjá listana upp þar sem auðvelt er að sjá þá, t.d. á ísskápinn.
Efst á listanum hjá okkur eru adukibaunir og kínóa. Best að fara að finna & pinna uppskriftir!
MYND #1
miðvikudagur, 15. janúar 2014
Skúffurnar skipulagðar
Nýtt ár, ný markmið!
Um daginn rakst ég á heimasíðu sem Alejandra heldur úti um skipulagningu og tiltekt. Ég hef alltaf litið á sjálfa mig sem skipulagða manneskju en það er renna upp fyrir mér að ég á enn margt ólært í skipulagsmálum. Alejandra, aftur á móti, er með þetta allt á hreinu!
Ég varð svo innblásin af hugmyndinni um að gott skipulag í kringum mann hjálpi manni að halda góðu skipulagi í huganum að ég fór beint í skúffur og skápa og tók að endurraða af fullum krafti. Ég fylgdi ráðum Alejöndru og braut saman boli og buxur og raðaði þeim upp á nýjan veg.
Það sem kom út úr skipulagsvinnunni:
Lausnin felst í því hvernig maður brýtur flíkurnar saman. Þegar maður pakkar bol þétt og vel saman á hann auðveldara með að standa upp á rönd, og það er einmitt það sem maður vill. Ég braut alla boli, buxur og peysur þannig saman að þær kæmust auðveldlega fyrir í skúffu standandi upp á rönd. Þegar flíkurnar standa upp á rönd sér maður allt í skúffunni jafnvel, plássið nýtist betur því ekkert fer til spillis og það er auðvelt að næla sér í bol eða buxur.
Þetta er svo mikil snilld. Ég hvet ykkur til að gera slíkt hið sama. Taka til. Endurraða. Skipuleggja. Það sparar pláss og allt í einu á maður svo mikið af fötum!
Hér að neðan: kennsla í einföldu samanbroti fyrir bol og nokkrar fyrir-eftir myndir af skúffunum okkar. Og svo mæli ég með að horfa á vidjóið hennar Alejöndru, hún er svo mikið æði.

- Meira pláss: Miklu meira! Skúffa sem áður geymdi aðeins nokkra boli hefur nú að geyma alla bolina mína. Þannig að í stað þess að æfingabolir séu á einum stað, náttbolir á öðrum og hversdagsbolir á enn öðrum, get ég nálgast alla bolina í sömu skúffu. Miklu einfaldara!
- Sjáanlegri: Föt sem áður voru falin undir, bakvið eða fyrir aftan önnur föt eru nú sýnileg og fyrir vikið líklegri til að vera notuð. Ég á allt í einu miklu fleiri föt!
- Aðgengilegri: Nú eru engir bolir lengur undir eða bakvið aðrar flíkur svo það er margfalt einfaldara að seilast eftir þeim og ganga frá þeim aftur á sinn stað.
- Allt á sinn stað: Nú hefur hver flík fengið sinn stað sem gerir það auðvelt að ganga að henni næst og líka að ganga frá henni eftir þvott.
Lausnin felst í því hvernig maður brýtur flíkurnar saman. Þegar maður pakkar bol þétt og vel saman á hann auðveldara með að standa upp á rönd, og það er einmitt það sem maður vill. Ég braut alla boli, buxur og peysur þannig saman að þær kæmust auðveldlega fyrir í skúffu standandi upp á rönd. Þegar flíkurnar standa upp á rönd sér maður allt í skúffunni jafnvel, plássið nýtist betur því ekkert fer til spillis og það er auðvelt að næla sér í bol eða buxur.
Þetta er svo mikil snilld. Ég hvet ykkur til að gera slíkt hið sama. Taka til. Endurraða. Skipuleggja. Það sparar pláss og allt í einu á maður svo mikið af fötum!
Hér að neðan: kennsla í einföldu samanbroti fyrir bol og nokkrar fyrir-eftir myndir af skúffunum okkar. Og svo mæli ég með að horfa á vidjóið hennar Alejöndru, hún er svo mikið æði.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)