þriðjudagur, 29. nóvember 2005

Kitlinn gaur

Hún Móa frænka kitlaði mig nýlega og þar sem ég er fremur kitlinn gaur birti ég þennan ágæta lista.

Sjö hlutir sem ég ætla að gera:
  1. Fara til Indlands
  2. Keppa í vaxtarrækt
  3. Fara í jöklaferð á Íslandi
  4. Læra á gítar
  5. Sigrast á Tivolisjóveikinni
  6. Klára þennan lista
  7. Eignast allar múmínbækurnar
Sjö hlutir sem ég get gert:
  1. Sungið tenór
  2. Legið í gufubaði
  3. Lesið á klósettinu
  4. Kitlað annað fólk
  5. Hreyft eyrun
  6. Bitið í stórutánna
  7. Búið til gamaldags rjómaís
Sjö hlutir sem ég get ekki gert:
  1. Leyft fólki að kitla mig á iljunum
  2. Gengið á höndum
  3. Horft tvisvar á lélega bíómynd
  4. Krækt puttunum eins og mamma
  5. Farið oft í snúningstæki í Tivoli
  6. Sungið bassa
  7. Talið upp meira af hlutum sem ég get ekki gert
Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið:
  1. Fallegt bros
  2. Innilegur hlátur
  3. Sjálfsöryggi
  4. Flottur kroppur
  5. Hjartahlýja
  6. Góður húmor
  7. Hreinskilni
Átta (hehe) frægar konur sem heilla:
  1. Penelope Cruz
  2. Jennifer Lopez
  3. Audrey Tautou
  4. Salma Hayek
  5. Michelle Yeoh
  6. Emanuelle Béart
  7. Tori Amos
  8. Parminder Nagra
Sjö orð sem ég segi oft:
  1. skilurðu
  2. ha
  3. íalvörunni
  4. hneta
  5. halló
  6. ok
  7. snútt
Sjö hlutir sem ég sé núna:
  1. Lyftingadagbókin
  2. Sófinn
  3. Gardínur
  4. Ferðatölvan
  5. Þrjú teppi
  6. Reykskynjari
  7. Stofuplanta
Sjö manneskjur sem ég kitla:
  1. Ásdís
  2. Bragi
  3. Kristjana
  4. Mamma
  5. Sigurgeir
  6. Stella
  7. Svenni

3 ummæli:

ásdís maría sagði...

En skemmtilegur listi :)

Nafnlaus sagði...

Sammála þér með snúningstækin í Tívolí, ég get ekki einu sinni hugsað um þau án þess að verða óglatt :-)

Nafnlaus sagði...

Jibbíkóla og jibbiddískibbidí :D

Ég ætla sko að kítlast áfram á morgun þegar ég er búin í prófinu í utanríkisverslun!!!!