Þetta voru yndisleg jól með öllu tilheyrandi: söngur tenóra niðri á Ingólfstorgi á Þorláksmessu og heitt súkkulaði eftir á; labbitúr í Fossvogskirkjugarð á aðfangadegi - eins og að koma í Kringluna á góðum degi svo margt var um manninn; góður matur, gott fólk og góðar gjafir (iittala jólin 2012!); miðnæturmessa með Páli Óskari og Móniku í Fríkirkjunni; jóladag sem bar upp á afmælisdag (aldrei þessu vant...); jólaboð og jólaspil (ég er orðspekingurinn!) á jóladag; jólaboð og jólarabb á 2. í jólum; konfekt, konfekt, konfekt; 33 túlípanar frá Amsterdam (lúv it!) og aðrar frábærar afmælisgjafir; jólatónlist, jólakúr og jólakós; hnetusteik í öll mál; Baggalútur; greniilmur; sofið út... Já, af hverju geta jólin ekki verið sérhvurn dag?
Hér að neðan gefur að líta nokkrar myndir - snapshots - af þessum yndislega tíma ársins. Það er nefnilega svo margt að upplifa með augunum á jólunum og myndavélin er svo skemmtileg að hún grípur augnablikin oft ekkert síður en augun.
Á þessum jólum þá:
Stóð þessi fura í Fossvogskirkjugarði skreytt rauðum slaufum
Kveiktum við á fjórða kerti aðfangakransins á Þorláksmessu, þegar við vorum búin að ganga Laugaveginn og komin inn með heitt piparmyntusúkkulaði í bolla og nýbakaðar smákökur.
Fengum við okkur grjónagraut í hádegismat og Baldur faldi möndluna - sem ég svo fann! Og rauðir og jólalegir túlípanarnir fengu að koma með okkur heim úr búðinni.
Var möndlugjöfinni pakkað inn...
Og hún opnuð! Reyndist vera kvæðin hans Jóhannesar úr Kötlum um jólakomuna!
Settumst við til borðs klukkan sex á aðfangadag, þegar bjöllunum hafði verið hringt og orðið heilagt.
Fengu allir jólabland í glasið sitt.
Var reyktur silungur og fyllt egg í forrétt.
Var jólatréð hlaðið pökkum!
Voru pakkarnir hver öðrum fallegri!
Var tekin góð pása á jóladag - eftir hátíðarmessu og fyrir jólaboð hjá pabba og Huldu - þar sem konfekt, jólabland og bók komu við sögu.
Og heitt súkkulaði í nýju bollunum!
Blómstruðu rauðu túlípanarnir.
Blómstruðu appelsínugulu, rauður og fjólubláu túlípanarnir frá Amsterdam.
Átti þessi stelpa afmæli!
Átti þessi stelpa fullt í fangi með túlípana!