sunnudagur, 27. apríl 2014

Afmælisdagur í París

Hann á afmæl' í dag, hann á afmæl' í dag,
hann á afmæl'ann Baldur,
hann á afmæl' í dag!
 
Við héldum upp á 35 ára afmæli Baldurs í gær. Hulda fór strax um morguninn á rölt um hverfið og kom til baka klifjuð ostum, jógúrt, baguette og croissant. Rúsínan í pylsuendanum var tertan sem þjónaði sem fley fyrir afmæliskertið.

Eftir afmælismorgunverð upp á rue Jean-Baptiste-Pigalle fórum við á stúfana. Tókum metróið niður á Les Halles og þaðan gengum við yfir á Ile de la cité. Á þeirri smáu eyju stendur hvorki meira né minna en Notre Dame de Paris. Þar fyrir framan er point zero sem er hin opinbera miðja Parísarborgar. Tróðum okkur að sjálfsögðu á þann litla blett og tókum myndir.

Frá Notre Dame röltum við yfir Pont de l’Archevêché þar sem allir ástarlásarnir hanga þungir á handriði brúarinnar. Þaðan sést baksvipurinn á Notre Dame sem er ekki síðri. Þessi kirkja er bara æði.

Tókum síðan stefnuna á Le Marais (mýrina) og skoðuðum í búðum, borðuðum falafel og ís og makkarónur. Tókum eftir það metróið upp að Sigurboganum og gengum niður Champs Elysees. Fengum okkur fleiri makkarónur (!) en að þessu sinni frá Pierre Hermé.

Afmælisdagurinn endaði á ítölskum veitingastað upp í 9. hverfi. Mozzarella di buffala óskaði afmælisbarninu til hamingju með daginn.

Ostur og fíkjur
 
Hann á afmæl' í dag!
 
Afmælisbarnið
 
Afmælistertan
 
Í metróinu á leiðinni að Notre Dame
 
Í metróinu
 
Metróið
 
Metróið
 
Signa
 
Untitled
 
Point zero
 
Point zero
 
Fyrir framan Notre Dame
 
Untitled
 
Untitled
 
Untitled

 
Bak við Notre Dame
 
 
 
Notre Dame
 
Pont de l’Archevêché
 
Untitled
 
Á Pont de l’Archevêché
 
Á Pont de l’Archevêché
 
Lovelocks
 
Kærleikslásar
 
Hulda og bíllinn
 
Makkarónur
 
Makkarónur
 
Untitled
 
Saltkaramelluís
 
Untitled
 
Untitled
 
Untitled
 
Pistasíumakkaróna
 
Söngvari
 
Sigurboginn
 
Á miðri Champs Elysees
 
Untitled
 
Untitled
 
Untitled
 
Untitled
 
Untitled
 
Champs Elysees
 
Untitled
 
Í Banana Republic
 
Untitled
 
Untitled
 
Pizza + mozzarella di buffala
 
Afmæliskakan

Engin ummæli: