STÓRA ASÍUREISAN

Í lok árs 2006 héldum við í ársreisu til Asíu. Fyrsti viðkomustaður var Indland og þar dvöldum við í sex mánuði við störf og ferðalög.

Eftir stutt stopp í Kathmandu í Nepal héldum við síðan rakleitt til Suðaustur-Asíu og heimsóttum yndislegu löndin þar: Víetnam, Kambódíu, Tæland, Malasíu, Singapore og Laos. Við komum heim til Íslands í nóvemberlok 2007.

Við vorum mjög dugleg að skrifa um reynslu okkar í ferðalaginu og birtum líka myndir úr allri ferðinni á flickr síðunni okkar. Hér að neðan eru linkar á allar færslurnar sem við skrifuðum meðan á þessari ferð stóð sem og linkur á albúmin úr ferðinni. Við vonum að þetta sé verðandi ferðalöngum bæði til gagns og gamans!